Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakkningu.
Hitið vatnið í potti og setjið kjúklingateninga út í. Bætið rjómaosti og rjóma saman við og hitið að suðu. Kryddið með pipar, steinselju og oregano. Takið til hliðar.
Steikið beikonið á þurri pönnu. Bætið því næst við smá olíu og látið sveppi og hvítlauk saman við.
Hellið rjómaostasósunni út á pönnunna ásamt valhnetunum og látið malla í um 5 mínútur.
Bætið vínberjum og döðlum saman við sósuna og sósunni síðan saman við pastað. Piprið ríflega, berið fram og njótið vel!