Ofninn hitaður í 200°C.
Lambahryggurinn fitusnyrtur að nokkru leyti.
Hvítlauksgeirarnir afhýddir, skornir í 2-3 flísar hver og síðan er mjóum hnífsoddi stungið í hryggvöðvann á mörgum stöðum og hvítlauksflís stungið í hverja rauf.
Brauðið sett í matvinnsluvél og mulið í mylsnu Rósmarín, oregano, pipar og salti blandað saman við.
Hryggurinn settur í ofnskúffu og penslaður með bráðnu smjöri.
Krydduðu brauðmylsnunni dreift jafnt yfir og þrýst vel niður.
Sett í ofninn og steikt í um 20 mínútur en þá er soðinu hellt í skúffuna, hitinn lækkaður í 160°C og steikt áfram í 30-45 mínútur, eftir því hve óskað er eftir að kjötið sé mikið steikt.
Soði eða vatni bætt við eftir þörfum.
Þegar hryggurinn er steiktur er hann settur á fat og álpappír breiddur lauslega yfir.
Soðinu hellt í pott, hitað að suðu, smakkað til með pipar og salti og e.t.v. þykkt ögn með sósujafnara, en sósan á að vera þunn.
Borið fram t.d. með bökuðum kartöflum og léttsteiktu grænmeti.