Fitusnyrtið lambafillet. Marinerið í olíu, hvítlauk, timjan og svörtum pipar. Því lengur sem kjötið marinerast því betra.
Ristið kjötið á meðalheitri pönnu á báðum hliðum. Kryddið með salti og pipar. Blandið saman sinnepi og rjóma. Penslið kjötið með blöndunni.
Setjið allt hráefni í brauðraspinn í matvinnsluvél og blandið vel. Veltið kjötinu upp úr raspinum og þrýstið honum á kjötið.
Eldið kjötið í 180°C heitum ofni í ca 3×5 mínútur. Hvílið í 5 mínútur á milli og í lokin til að fá safaríkara kjöt.
Gott að bera fram með rótargrænmeti, ristuðum sveppum og lamba soðsósu.