Hitið ofninn í 160°C.
Saxið hneturnar smátt og ristið á pönnu.
Hrærið sykur og Dijon-sinnep saman ásamt appelsínusafa, Mango Chutney, salti og pipar.
Brúnið kalkúnabringurnar í olíu á meðalheitri pönnu í um 2 mínútur á hvorri hlið og setjið síðan í eldfast mót.
Berið þykkt lag af sinnepsblöndunni yfir bringurnar og stráið hnetunum yfir.
Bakið í 20-30 mínútur eða þar til bringurnar hafa náð 67°C kjarnhita.
Látið hvíla undir stykki í 7-10 mínútur áður en borið er fram.